Færsluflokkur: Fjármál

Svo segja menn að framsóknarleiðin sé ekki fær!!!

Ég get ekki látið hjá líða að deila þessari dæmisögu með ykkur:  

Þessi saga gerðist í niðurníddu sveitaþorpi á Englandi - en gæti hafa gerst í kvótalausu krummaskuði á Íslandi. 

Það kom forríkur Ameríkani í þorpið og bókaði svítuna á sveitahótelinu í viku.  Hann borgaði 1000 pund í fyrirframgreiðslu. Hóteleigandinn varð mjög ánægður og borgaði húsgagnasmiðnum 1000 pund sem hann skuldaði honum. Húsgagnasmiðurinn varð mjög ánægður og borgaði kaupmanninum 1000 pund sem hann skuldaði honum. Kaupmaðurinn varð mjög ánægður og borgaði píparanum 1000 pund sem hann skuldaði honum. Píparinn varð mjög feginn og borgaði þorpshórunni 1000 pund sem hann skuldaði henni (hún var búin að hóta að rukka eiginkonuna). Þorpshóran varð mjög ánægð og borgaði hóteleigandum 1000 pund sem hún skuldaði honum fyrir herbergi til að stunda sína vinnu. 

Svo kom Ameríkaninn niður í lobbíið og sagðist vera hættur við að vera í þorpinu og hóteleigandinn endurgreiddi honum 1000 pund. 

Allir voru nú skuldlausir og ánægðir. 

Svo segja menn að framsóknarleiðin sé ekki fær!!!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband