Þrekraun eða aumingjaskapur

Þá er Laugavegshlaupið afstaðið. Það var undarleg tilfinning í gær að hugsa til þess að snemma næsta morgunn færi ég í Landmannalaugar og hlypi þaðan í Þórsmörk, borðaði og væri kominn heim á miðju kvöldi. En svona var þetta bara.

Laugavegurinn - 2013-06

Við fórum þríeykið, ég, Þórdís og Siggi saman í bíl í morgun og fórum með fjallarútu í Landmannalaugar. Leiðin gekk ekki eins greitt eins og búast mátti við og voru ökumenn í einhverjum vandamálum í sumum brekkunum. Það var stutt stopp í Hrauneyjum þar sem fólki var gefinn kostur á að fá morgunmat og komast á klósett. Ég valdi morgunmatinn og náði að borða ágætleg. Komið var í Landmannalaugar í smá rigningarúða um kl. 8.30 og því höfðum við 30 mínútur til að skrá okkur og komast á klósettið. Valdi ég að gera bæði og við þrjú voru klár í hlaupið í fyrsta ráshópnum.

Laugavegurinn - 2013-36

Það var bratt upp á Laugarhraunið og mikið kraðak svo rólega var farið. Það kom mér á óvart hversu leiðin var fjölbreytt og hægt var að hlaupa marga kafla. Það var svo mikill snjór í Hrafntinnuskeri, svolítill nýfallinn snjór en ekki mjög erfiður yfirferðar nema fyrir þá sök að hann náði yfir mjög langan kafla. Fyrsti kaflinn var ægifagur enda útsýni gott. Þoka og skýin hrönnuðust yfir í Hrafntinnuskeri og þar var frekar kalt án þess að það kæmi að sök. Við þrjú héldum hópinn að mestu leyti en Siggi dróst þó aðeins afturúr. Hlaupið niður Jökultungurnar var bratt og erfitt og tók verulega á lærin. Hafði ég fyrir hlaup talið mig góðan í niður brekku hlaupum en það hjálpaði ekki mikið auk þess sem skynsemin sagði manni að fara ekki of geyst. Það var gott að koma í Álftavatn eins og á aðrar drykkjarstöðvar, enda vel tekið á móti manni. Stoppin voru þau stutt, kannski nálægt mínútu.

Laugavegurinn - 2013-42

Ég var í góðum gír og höfðum við Þórdís hlaupið saman í Álftavatn þar sem hún stoppaði aðeins lengur. Ég vissi að hún væri spræk og kíkti öðru hverju til baka en sá hana hvergi. Leitaði ég að bláum jakka sem hún hafði þá farið úr. Ég kom að Bláfjallakvíslinni, nokkuð breið og straumhart vatnið náði manni rúmlega í hné. Vatnið var kalt og mér var skítkalt á fótunum, en reyndar bara í stuttan tíma. Ég kíkti ekkert í aukatöskuna mína sem þar var en notaði tækifærið og fór úr öðrum skónum því einhver steinn hafði verið að pirra mig mikið. Engan stein fann ég og hljóp áfram og nú fann ég fyrir steininum á nýjum stað og ákvað þá að reyna að láta þetta ekki trufla mig. Ég var með góðar skóhlífar og veit ekki hvernig þessi steinn komst í skóna. Eftir þetta tók við langur kafli á söndunum en á vegi og slóðum. Þarna var ég farinn að vera verulega aumur í náranum, var ekki meiddur en orkan var bara ekki til staðar og skrefin fóru að styttast og hraðinn minnkaði mikið. Fljótlega náði Þórdís mér og við hlupum nokkurn kafla saman þar til ég sagði henni að ég hefði ekkert í hana þarna og hægt og rólega fjarlægðist hún.

Laugavegurinn - 2013-52

Þetta var vendipunktur fyrir mig í hlaupinu við tæplega 30 km. Ég áttaði mig á því að ég hafði ekki tekið inn nægilega orkur á fyrri hlutanum, hafði þó tekið inn 3 gel og drukkið eitthvað af orkudrykk en greinilega alls ekki nóg. Í svona löngu hlaupi er mikilvægt fyrir mig að taka inn gel á ca. hálftíma fresti. Hefði ég þá átt að vera búinn að taka a.m.k. 6 gel.

Eftir þetta leið mér ekkert sérstaklega vel, var svolítið fúll út í sjálfan mig fyrir að hafa ekki verið skynsamari en reyndi að borða eins mikið og ég fékk. Stundum var ég aðeins hressari en oft langaði mig bara að ganga restina. En það var ekki í boði og alls kyns útreikningar voru notaðir til að gera restina styttri. Landið var fjölbreytt, brautin líka, upp og niður og stundum hörð og fín, stundum bara drulla og stundum mikill sandur. Við þetta bættust sprænur og ár, stundum blotnaði maður í fæturna og stundum slapp maður yfir með því að stökkva á steinum.

Laugavegurinn - 2013-54

Yndislegt var að fá hvatningu frá fólki úr Hlaupahópnum sem voru á síðustu 15 km og hreinlega ómetanlegt, Bestu þakkir fyrir það.

Ég gafst upp á að þurrka af gleraugunum og seinni hluta hlaupsins hljóp ég gleraugnalaus. Kom það ekki mikið að sök, enda útsýnið ekki mikið í rigningunni en ég varð að einbeita mér betur að brautinni og horfa nær en ella.

Siggi náði mér þegar við vorum búnir að hlaupa ca. 47 km og vorum við góður grátkór sem höfðum falið í sömu gryfjuna. Hlaupum við meira og minna saman þar til við komum í skóginn og tæpir 3 km voru eftir. Var fínt að hafa samfylgdina og hafði ég beðið eftir honum að hann næði mér en bjóst þá við að ég næði ekki að halda í við hann.  

Laugavegurinn - 2013-47

Mér tókst að steypast á hausinn rétt áður en hann náði mér, var farinn í dagdrauma með að nú væru aðeins 10 km eftir og ég gæti léttilega hlaupið þá vegalengd og var farinn að sjá sjálfan mig í markinu. Rakst ég þá í smástein og steyptist fram fyrir mig en spratt upp jafn hratt og Jón spæó og hafi ekki meint af. 

Laugavegurinn - 2013-62

Það var yndislegt að fara í Þröngána, hún var ekki breið en djúp og straumhörð. Fannst mér það fín kæling fyrir kálfana og nú var bara um 3 km eftir. Þarna stoppaði Siggi á drykkjarstöðinni en ég hélt áfram. Fljótlega heyrði ég nafn mitt nefn og ég hvattur til dáða. Það væri bara 1 km eftir. Þá setti ég allt í botn, labbaði aðeins verstu brekkurnar. Fleiri skilaboð fékk ég um það hvað væri stutt eftir en þessi kílómetri var a.m.k. tvöfaldur ef ekki meira. En hvað með það, ég hafði fengið einhvern fítonskraft og þeyttist áfram og fór fram úr ca. 6 manns. Fólk hoppaði úr þrönga slóðanum þegar ég nálgaðist og allir hvöttu mann áfram. Þetta var hrikalega skemmtileg leið og ég lét vaða í brekkurnar niður og mér fannst ég fljúga. Loksins fór að hylla undir markið. Mér fannst ég reyndar kominn í mark þegar ég kom inn í trektina en þá var enn svolítið eftir og framundan var markið. Ég hafði litið á klukkuna í skóginum og þá hafði ég 3 mínútur að ná undir 6.30. Ég kom í mark á 6.33.44 klst. og þar var vel fagnað og mér fannst alveg tilefni til handahlaups þegar ég kæmi í gegnum marki og var því vel fagnað. Ekki veit ég hvor það var sérlega fallegt, en ég var ekkert þreyttur í höndunum svo þetta var tilvalið. Enn var yndislegt að finna stuðning hlaupafélaganna sem voru fjölmennir í marki, en margir þeirra höfðu hlaupið Laugaveginn á tveimur dögum.

Laugavegurinn - 2013-68

Eftir að hafa fengið smá í gogginn var nýja saunan prófuð og þar sat ég í klukkutíma áður en ég fór í úti - Gardena sturtu og fór í hlý föt. Við tók löng bið eftir matnum og auðvitað hafði ég misst af því að borða með félögunum.

Þegar ég var í versta ástandinu ákvað ég að ég ætlaði aldrei að hlaupa Laugaveginn aftur!!! :) Þegar ég kom í mark leið mér rosalega vel og gat ég ekki annað en samglaðst með Þórdísi sem var um 15 mínútum á undan mér og sigraði í sínum aldursflokki. Ótrúlega flottur árangur við þessar erfiðu aðstæður.  Eftir á fannst mér þetta hafa bara verið fínt hlaup en líklega hressti endaspretturinn mig við :)

Ég fékk far með Sigga og fjölskyldu í bæinn og við vorum eins og tvö gamalmenni afturí. Stirðleikinn var mikill enda hafði hvorugur okkar haft rænu á að teygja eftir hlaupið.

Niðurstaða: Skemmtilegt en erfitt hlaup, í þessa tilfelli miklu erfiðara en maraþonhlaupið mitt. Nýi Löffler jakkinn svínvirkaði, alveg vatnsheldur og með opnustu goretex húðinni svo ég svitnaði ekki mikið í honum. 

Árangurinn:

  • 68. sæti af þeim tæplega 300 sem hlupu af stað. 
  • 6. af 33 í mínum aldursflokki.
  • Aðeins einn eldri en ég var á undan mér (fæddur sama ár og langt á undan mér)
  • 8 konur voru á undan mér. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband