Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Er þetta sem fréttamönnum dettur fyrst í hug?? Hvers konar fyrirsögn er þetta?

Það var engin frétt í gær um að þessi maður væri umdeildu, af hverju núna þegar hann er nýdáinn?
Kunnið þið ekki að sýna neina virðingu?
mbl.is Þótti umdeildur maður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn geta slasast hvar sem er

Ótrúlega margir fóru þessa gönguleið í gær og var stundum maður við mann. Þarna sem maðurinn slasaðist var á litlum stað klaki en dökkt yfir. Þarna höfðu hunduð manns farið án þess að detta en svona geta slysin gerst. Á fleir stöðum voru klakabunkar og margir runnu án þess að meiðast. Þetta gæti líka gerst í Esjuhlíðum, eða Helgafellshlíðum. Björgunarsveitarmenn eiga heiður skilið en miðað við vesenið og tímann sem þetta tók held ég að réttara hefði verið að bera manninn á börum niður eftir. Þetta er ekki löng leið en erfið á köflum. Mitt mat ræður hins vegar engu þar sem ég átti ekki að bera. Þeir mátu þetta eftir sinni bestu vitund.
mbl.is Hífðu slasaðan mann 90 metra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki nákvæm frétt

Blaðamaður ætti að kíkja yfir síðustu málsgreinina og kanna heimildir ef hann hefur ekki verið þarna sjálfur.
mbl.is Kvikmyndaver opnað í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósanngjarnir útgerðarmenn

Rosalega geta útgerðarmenn verið ósanngjarnir og heimtufrekir. Þeir verða að fara átta sig á því að framsal kvótans var upphafið að fjármálavitleysunni hér á landi. Þá færðist auður til fárra manna og spákaupmennskan blómstraði.

Að menn skulu jafnvel vera andsnúnir því að kvóti sem menn nýta ekki verði teknir af þeim ber vott um mikið dómgreindarleysi og þjóðin er búin að fá sig fullsadda af græðginni.

Enginn er að kippa grundvelli undir blómstrandi útgerð.

Græðgi og hroki hefur einkennt stefnu útgerðarmanna og mál er að linni. Mikið vildi ég að þjóðarástin sem þeir bera sig væri sönn. Þar kveður við falskan tón. Ætli menn að beita hótunum þá verða menn að súpa seiðið af því sjálfir. Verði þeim að góðu.


mbl.is Eyjaflotinn kominn í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málsvari þjóðarinnar og ríkisstjórnar

Þarna sannaði Ólafur að fáir hafa tærnar þar sem hann hefur hælana í að tala máli þjóðarinnar. Auðvitað á ríkisstjórnin að semja við hann að tala máli ríkisstjórnarinnar einnig í þessari erfiðu stöðu þó það sé ekki skilgreint hlutverk hans.

Nú ríður á að traust ríki á milli manna og því mikilvægt að ríkisstjórnin starfi vel með forsetanum við að tala okkar málstað.

Það eru ekki margir sem geta staðið uppi í hárinu á svona spyrlum sem hafa það að eina markmiði að sigra viðmælanda sinn.

Hvaða skoðun sem við höfum á Dr. Ólafi Ragnari forseta, þá er hann góður í þessu og við eigum að nota það.


mbl.is Ólafur í kröppum dansi á BBC
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með samfélagsþjónustu?

Ég er í engri aðstöðu til að dæma í þessu máli en velti því fyrir mér hvort það sé ekki eðlilegt í stað þess að fresta alveg refsingu (voru henni ekki dæmdar neinar bætur?) að dæmi gerendur til samfélagsvinnu.

Ég er maður fyrirgefningarinnar og hef takmarkaða trú á fangavist ungs fólks - sýni það iðrun. En ég er sammála um að dómur þarf að hafa einhvern fælingarmátt.


mbl.is Eins og blaut tuska í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Listamannalaun eru tímaskekkja.

Nú er kominn tími til að leggja niður listamannlaunin. Það eru engin rök fyrir því að greiða fólki úr opinberum sjóðum fyrir að stunda list á meðan þjóðin er skattpínd og stolið af henni. Listamenn verða að fá sér aðra vinnu ef þeir lifa ekki af list sinni. Engin ástæða er heldur að greiða heiðurslaun til þeirra sem eru jafnvel á eftirlaunum frá ríkinu. Heiður manna er ekki mældur í krónum og aurum.

Ekki hef ég hugmynd um það afhverju Edda Heiðrún á þetta að fá þetta frekar en einhver annar, ég er ekki dómbær á það. Ég vona bara að það tengist ekki hennar frábæru þátttöku í söfnuninni fyrir Grensásdeildina, það væri þá sóðaleg misnotkun á heiðurslaununum. Hvers ættu þá aðrir en listamenn að gjalda?


mbl.is Edda Heiðrún fær listamannalaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara 27. nóvember heldur 27. nóv. - 3. desember

Af vef FMR:

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 27. nóvember til og með 3. desember 2009 var 50. Þar af voru 37 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.479 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Suðurnesjum*. Það var samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 8 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 53 milljónir króna og meðalupphæð á samning 13,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli.  Heildarveltan var 59 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,7 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 27. nóvember til og með 3. desemberSamtalsFjölbýliSérbýliAðrar eignirMeðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík26204226
Seltjarnarnes10101
Mosfellsbær00003
Kópavogur16132111
Hafnarfjörður74306
Garðabær00004
Álftanes00000
Samtals503710349
Velta (millj. kr.)1.479   1.707
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.)29,6   35,1
Suðurnes10014
Velta (millj. kr.)8   75
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.)7,5   20,1
Akureyri43014
Velta (millj. kr.)53   79
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.)13,2   18,6
Árborgarsvæðið31203
Velta (millj. kr.)59   65
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.)19,7   23,7

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.


mbl.is Fimmtíu fasteignir seldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr tekjumöguleiki fyrir ríkisstjórnina - kílómetragjald á Gunnlaug.

Kannski Gunnlaugur þurfi að fara hljótt með afrek sín svo ríkisstjórnin setji ekki vegaskatt eða km gjald á hagfræðinginn hlaupaglaða Smile
mbl.is Gunnlaugur nálgast 5.000 kílómetra á árinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framkvæma stökk ????

Ég framkvæmdi morgunverðarát og er ágætlega saddur. Er Davíð ekki á vakt?

Flott stökk hjá stráknum!


mbl.is Heimsviðburður í fimleikum á Íslandi (myndband)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband