23.4.2008 | 12:39
Loksins
Fyrsta flautið hjá vörubílstjórum vakti aðdáun hjá mér, að fólk stæði upp og mótmælti því sem því fannst ranglátt. Síðan var haldið áfram og í gær þegar þeir óku framhjá flautandi hugsaði ég mér "er ekki allt í lagi, hvað hefur áunnist með þessum aðgerðum?"
Nei, vörubílstjórar þurfa að hlíta landslögum eins og aðrir og því var löngu orðið tímabært að taka á þessum aðgerðum bílstjóranna sem hefur bitnað á þeim sem síst skyldi, einstaklingum sem þurfa að greiða hátt bensínverð.
Þeir geta mótmælt með því að beina aðgerðum gegn ráðamönnum en ofbeldi er ekki vænlegt til árangurs.
Mótmælendur handteknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:51 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.