Varla við Fagradalsfjall!

Tæpa 2 km NV af Bæjarfelli og Krýsuvíkurbænum gamla.


mbl.is Jarðskjálftahrina við Krýsuvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætti hún ekki að heita "Borgarstjórn"?

Er þetta ekki fyrsta skref í afnám flokksræðisins? Greindavíkurmálið er skólabókardæmi um hvernig lýðræði á ekki að virka. Enginn (eða fáir) kaus VG en samt eiga þeir 2 í stjórn. Við fáum ekki að kjósa einstaklinga, neydd til að kjósa flokka en svo geta einstaklingarnir í flokkunum gert það sem þeim sýnist af því að við kusum þá!?

Já lýðræðið er undarlegt. - en borgarstjórn er betra en þjóðstjórn, það á ekki við í héraði.


mbl.is „Þjóðstjórn" í Borgarbyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknartalningarvandi???

Það væri gaman að fá betri skilgreiningu á hvaða íbúðir teljast fokheldar. Að öllu jöfnu eru íbúðir sem flokkast sem fokheldar ekki íbúðarhæfar og ekki búið í þeim.

Ætli stór hluti þessara íbúða séu ekki fullbúnar og því ekki skilgreindar sem fokheldar. Hér vantar einhað í fréttina hjá Fasteignaskrá! Kannski þetta sé framsóknartalningarvandi?


mbl.is Um 130 þúsund fokheldar íbúðir skráðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látnir deyja ekki

"Hinn látni er talinn hafa dáið á heimili sínu"

Svona skrifar maður ekki!


mbl.is Larsson missti bróður sinn og leikur ekki gegn Möltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóstangaveiðifélag Snæfellsness heitir það

www.sjosnae.is
mbl.is Dorgað í Ólafsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannleikurinn á Wikipedíu

http://en.wikipedia.org/wiki/Magn%C3%BAs_%C3%9Eorsteinsson 
mbl.is Fallist á gjaldþrotakröfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógurleg viðkvæmni er þetta

Alltaf þurfa einhverjir að mistúlka allt vitlaust eins og barnið sagði. Ekki hafði ég hugmyndaflug í mér að sjá ólöglegar eða löglegar fóstureyðingar út úr þessu. Eru þær framkvæmdar svona? Þó er ég í meginatriðum andsnúinn fóstureyðingum. Að ætla þessu beinast gegn læknum þarf frjótt ímyndunarafl.

Þessi auglýsing virkaði sterkt á mig og árangurinn því fullkominn. Auglýsingin vekur svo umtal og það hlýtur að vera bónus fyrir SI.

Hins vegar má alltaf deila um það hversu langt á að ganga til þess að vekja athygli. Ég spyr sem iðnaðarmaður, faglærður; Er faglærður iðnaðarmaður alltaf betri iðnaðarmaður en sá sem ekki hefur prófstimpil? Ég segi nei. Það eru fjölmargir fúskarar í iðnaðarmannastétt og auðvitað ættu Samtök iðnaðarins líka að beina kröftum sínum að því að tryggja að neytendur lendi ekki á þeim.


mbl.is Auglýsing SI vekur hörð viðbrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki Davíð - fólkið sem fagnaði ógurlega

Mér kom ekki á óvart það sem Davíð sagði en viðbrögð fundargesta minnti mig á viðbrögð við ræðum Hitlers. Lotningin var algjör. Hverjum má þá um kenna?
mbl.is Davíð eyðilagði landsfundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lifandi líffæragjafar

Ég gat nú ekki annað en hlegið að fréttatilkynningu Félags- og heilbrigðisráðuneytisins sem hóf tilkynningu sína á þennan hátt:

Lög um greiðslur til líffæragjafa

2.4.2009

Alþingi hefur samþykkt frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar þurfi þeir að vera frá námi eða vinnu í tengslum við líffæragjöfina...

Þurfti að taka fram að þetta ætti aðeins við um lifandi líffæragjafa?


Loksins - mætti LÍN læra af þessu

Það var þá kominn tími til. Mætti Lánasjóður íslenskra námsmanna læra af þessu en það er í raun ótrúlegt að íslenska ríkið sem lánar þegnum sínum til námst skuli krefja þriðja aðila (tvo) til að ábyrgjast greiðslu af lánunum. Ábyrgð sem ekki er hægt að komast undan og ekki hægt að færa lánin á t.d. fasteignaveð þó skuldari vilji.
mbl.is Afnema ábyrgð þriðja aðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband