Hver stjórnar sveitarfélögunum? Íþróttahreyfingin?

Nú veltir körfuknattleiksambandið því fyrir sér að setja reglugerð sem gerir kröfur til þess að í öllum íþróttahúsum sem keppt er í eftstu deild séu parketgólf. Þau félög sem hafi dúklögð gólf þurfi því að skipta um gólfefni og fréttinni fylgdi að kostnaðurinn væri um 15 milljónir kr. á hús og félli kostnaðurinn á sveitarfélögin! Halló, halló, hver stjórnar útgjöldum bæjarfélaganna? Það er með ólíkindum frekjan. Er ekki kominn tími til að sveitarstjórnir fái sjálfar að ráða yfir peningum sveitarfélögum sínum. Kannski Samfylkingin í Hafnarfirði kjósi þessa aðferð og kalli hana íbúalýðræði.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband