4.9.2009 | 12:11
Á maður að skilja svona frétt?
"Íslandsbanki segir, að ein af ástæðum þess að samdráttur landsframleiðslu sé ekki meiri hér en raun beri vitni, þrátt fyrir banka- og gjaldeyriskreppu, sé að landið flytji úr stóran hluta af þessari kreppu. Þannig komi um 46,9% samdráttur í fjárfestingum á 2. ársfjórðungi og 17,4% samdráttur í neyslu fram í um 34,8% samdrætti í innflutningi, sem svo aftur komi niður á eftirspurn og landsframleiðslu landa sem framleiða fjárfestingar- og neysluvörur til útflutnings og sérstaklega þann hluta sem er hvað háðastur sveiflum í tekjum líkt og Þýskaland og Japan. "
Gaman væri að heyra hvort einhver hafi skilið þetta. Ekki held ég að blaðamaðurinn hafi skilið hvað hann var að skrifa um.
Kreppan flutt út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Íslendingar kaupa minna af innfluttum vörum og erlendum húsum. Innlend framleiðsla minnkar minna en spáð var því almenningur dregur úr erlendum vörum í meira mæli en innlendum. Því verður samdráttur í landsframleiðslu ekki eins mikill og óttast var.
Aliber, 4.9.2009 kl. 12:27
Ég var einmitt að velta þessu fyrir mér en þorði ekki að spyrja af ótta við að vera talinn vitlaus. Ég næ engum botni í svona tölfræðilega loftfimleika, sem segja manni svo að stjórnlaus samdráttur sé útflutningsvara. Ég verð að taka ofan fyrir spunameisturum bankanna. Þeir hafa engu gleymt þarna í greiningardeildunum, þrátt fyrir allt.
Þeir hafa vafalaust opnað kampavínsflösku eða tvær við þessar góðu fréttir.
Jón Steinar Ragnarsson, 4.9.2009 kl. 12:32
Það er jú samdráttur í landsframleiðslu, en miðað við innflutning og kaupmátt, þá virðist hann ekki eins mikill. Er það ekki málið? Framleiðsla fyrirtækis dregst saman, en af því að innkaupin dragast saman í sama hlutfalli eða meir, þá er semsagt framleiðnin svipuð á blaðinu, burtséð frá veltunni? Ansi eru hálmstráin í forsendunum orðin veik finnst mér. Kaupmátturinn þinn minkar ekkert af því að þú ert að kaupa svo miklu minna? Er það rétt skilið.
Jesúspétur!
Jón Steinar Ragnarsson, 4.9.2009 kl. 12:39
"sem svo aftur komi niður á eftirspurn og landsframleiðslu landa sem framleiða fjárfestingar- og neysluvörur til útflutnings og sérstaklega þann hluta sem er hvað háðastur sveiflum í tekjum líkt og Þýskaland og Japan. "
á þá að vera það sem þú segir Aliber? Það er ekki mikið líkt með þessum tveimur útgáfum :)
Guðni Gíslason, 4.9.2009 kl. 12:40
Jón Steina: Þá fyrst verður maður vitlaus ef maður spyr ekki :)
Guðni Gíslason, 4.9.2009 kl. 12:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.