Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
19.2.2009 | 14:44
Athugasemdir við háar greiðslur til lækna voru ekki kynntar! Sjá viðtal við Guðlaug Þór í Fjarðarpóstinum
![]() |
Guðlaugur vildi ekki ofurlaun lækna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.2.2009 | 22:25
Er hann að hleypa Lúðvík að í formanns- eða varaformannsslag?
Þegar Gunnar gaf kost á sér til Alþingis hafði ég skrifað í leiðara að það væri Lúðvík sem stefndi á þing og að Gunnar yrði bæjarstjóri í Hafnarfirði. Er Gunnar að leiðrétta mistökin og er hann með þessu að gefa pláss fyrir Lúðvík Geirsson í þingslaginn en Lúðvík hefur verið orðaður við formennsku og varaformennsku í Samfylkingunni (þó ekki bæði eins og grínistar lesa þetta örugglega).
Þá myndast aftur pláss fyrir Gunnar í bæjarstjórn og tæki hann þá við bæjarstjórastólnum af Lúðvík. Gunnar er verkfræðimenntaður og rak fyrirtækið Aðalskoðun með sóma ásamt öðrum og sennilega væru þessir tveir ágætu einstaklingar þá á réttari hillum en nú.
Gunnar, það er stórmennskulegt af þér að víkja til hliðar þó mér finnist sú ástæða sem þú nefnir vera alltof léttvæg og eigi ekki við. Gangi þér allt í haginn.
![]() |
Gunnar sækist ekki eftir endurkjöri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.2.2009 | 16:33
Börnin okkar eiga að hafa jafnan rétt - óháð kyni - og óháð kynjakvóta
Hvað er jafnrétti, jú, jöfn réttindi til einhverra hluta. Jafnrétti kynjanna er því að konur, jafnt sem karlar hafa sinn rétt óháð kyni. Þýðir það þá að alls staðar eigi að vera jafn margar konur og karlar? Nei, ekki aldeilis. Sjálfur á ég sex stráka og verð seint kærður fyrir brot á jafnréttislögum. Nýverið bárust fréttir af brölti Samfylkingarmanna sem ekki vildu tryggja konu annað af efstu 2 sætunum og gengu þá konur á dyr. Þær ætluðust sem sagt til að kynferði þeirra réði hvar þær enduðu á framboðslista. Er þetta jafnrétti? Nei. Í jafnréttisbaráttunni (lesist kvenréttindabaráttunni) gleymist oft réttur hvers einstaklings. Það er undarlegt að ef ekki á að skipta kyn manna þá þurfi annað kynið að víkja vegna þess að ekki séu jafn margir frá hvoru kyni. Greyið Mörður Árnason varð t.d. fyrir barðinu á þessu. Konur eru að verða í stórum meirihluta í kennarastétt, a.m.k. í grunnskólum. Enginn segir neitt við því þrátt fyrir að þar geti spilað inn uppeldisleg markmið. Auðvitað hlýtur að vera eðlilegt að ákveðnar stéttir verði ekki karla- eða kvennastéttir eingöngu og auðvitað hlýtur það að vera jafn áhugavert fyrir konur sem karlmenn að taka þátt í stjórnmálum. En þetta er einstaklingsbundið val og hver og einn hefur líka rétt á að taka ekki þátt.
Aukið fæðingarorlof hefur gefið konum sem vilja taka virkan þátt í atvinnulífinu mun auðveldara fyrir en áður. Nú er frekar viðurkennt að kona í áhrifastöðu taki sér frí vegna barnseigna enda er geysilega mikilvægt að foreldrar geti verið sem lengst heima með börnum sínum. Eðlilegri krafa er að foreldrar verði lengur heima frekar en að hægt sé að koma börnum á leikskóla fyrr. Það er börnunum að jafnaði fyrir bestu. En ekki gleyma að börnin okkar eiga að hafa jafnan rétt - óháð kyni - og óháð kynjakvóta.
Leiðari Fjarðarpóstsins 19. febrúar 2009
www.fjardarposturinn.is
16.2.2009 | 14:36
Mikið er gott að hafa aðgang að fundargerðum!
Úr fundargerð bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 3. febrúar sl.:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2009 | 14:03
Jafnrétti kynjanna er ekki alltaf jafnrétti - því síður lýðræði
Jafnrétti kynjanna er ekki alltaf jafnrétti - því síður lýðræði. Kynjakvóta er ásættanlegt að beita í nauðvörn sem ekki á lengur við. Ég get verið sammála Ragnari að auðvitað á að treysta kjósendum fullkomlega og ekki mata í þá. Hins vegar hef ég aldrei skilið þessi prófkjör þegar fólk býður sig fram í ákveðin sæti. Vilji menn að vilji fólksins komi fram sem best, bjóða menn sig fram á lista og fólkið raðar.
Slíkt ætti að gera á kjördag og kominn tími að hamla gegn óheftu flokksræði sem takmarkar lýðræðið.
![]() |
Dregur framboð sitt til baka vegna kynjakvóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.2.2009 | 09:17
Enn erfitt ástand hjá Morgunblaðinu
Hvað er þetta með Moggann og "fréttir" af kuli í fasteignamarkaði og nú bílamarkaði. Væri það ekki frétt ef markaðurinn væri kominn í fullan gang.
Af hverju birtir Morgunblaðið ekki fréttir um að fjárhagsstaða Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins sé ennþá slæm? Þá frétt mætti birta daglega.
Hver hefur hag af því að tala markaðinn dauðann niður? Sennilega er erfiður rekstur Heklu ekki sjálfum rekstrinum að kenna frekar en hjá Árvakri. Liggur ekki vandinn hjá eigendum sem hafa verið að ganga af fyrirtækjum dauðum með skuldsettum yfirtökum og sölu eigna til þess eins að bjarga fjárfestingu sem menn réðu ekki við?
![]() |
Alkul í bílasölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.2.2009 | 19:09
Af hverju er þetta mótframboð?
Eflaust er það af vanþekkingu minni á VR en ég skil ekki af hverju annað framboð er endilega mótframboð, eru öll framboð ekki jafngild?
![]() |
Una niðurstöðu kjörstjórnar VR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2009 | 21:47
Glæsilegur Hafnfirðingur fer sem fulltrúi Íslands til Moskvu
"Já, það er satt" lagið "Is it true" fer sem framlag Íslands í Eurovision í Moskvu. Flytjandi er hin átján ára gamla Jóhanna Guðrún Jónsdóttir úr Hafnarfirði sem heillaði greinilega landann með glæsilegum flutningi sínum og fallegri ballöðu eftir Óskar Pál Sveinsson.
Er ekki að efa að hún á eftir að heilla Evrópubúa með söng sínum og látlausri framkomu sinni. Sannkölluð stjarna úr Hafnarfirði.
http://www.youtube.com/watch?v=W5az7OU7wj4
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2009 | 21:19
Góðu launin eru ekki holl verkalýðsleiðtogum
![]() |
Trúnaðarmannaráð VR kallað til fundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2009 | 23:23
Auðvitað einsdæmi! Ástandið er einsdæmi - Hegðun Davíðs er einsdæmi
Það er gott að Davíð og Björn hafi kannað hvernig málum hefur verið háttað í hinum vestræna heimi. En við hverju bjóst Davíð? Allir landsmenn vissu að það átti að skipta út - meira að segja Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að hreinsa til í Seðlabankanum. Ef að Davíð var að átta sig fyrst á þessu þegar bréfið kom lýsir það aðeins hversu veruleikafirrtur hann er orðinn.
Maður sem segist aldrei hafa hlaupist frá sínum verkum. Samt hætti hann sem forsætisráðherra, samt hætti hann sem þingmaður. Til að gerast bitlingaseðlabankastjóri.
Davíð kvartaði yfir því að bréfið til hans hafi verið birt opinberlega áður en hann gæti lesið það. Hann lét birta sitt bréf strax! Sjálfsvirðingin er ekki mikil.
Nei Björn, ekki ljúka þínum stjórnmálaferli með svona vitleysu, leggðu frekar þitt á vogaskálarnar til að hreinsa til og koma málum í betra horf. þú færð hvort eð er ekki bitlingaembætti. - Það er rétt að vona að slíkum tímum sé lokið.
![]() |
Björn: Réttmæt ábending Davíðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)